app, starfsmannaapp

Leita

Fréttir og upplýsingar frá InfoMentor

Calendar icon

26. júní, 2025

sumarfrí
Þá er formlegu skólaári í grunn- og framhaldsskólum landsins lokið og sumarið framundan. Í vor var fyrsta árið sem við hjá InfoMentor ljúkum skólaárinu með INNU og VÖLU kerfunum en árið hefur verið annasamt, lærdómsríkt en síðast en ekki síst skemmtilegt og gefandi. Starfsfólk InfoMentor hefur farið í gegnum miklar breytingar á skólaárinu og hér hefur verið mikið líf og fjör en teymið hefur sýnt mikla fagmennsku og seiglu í gegnum allar þær breytingar og áskoranir undanfarna mánuði.
Eitt af síðustu stóru verkefnunum í vor var að klára innritun í framhaldsskóla en INNA var í fyrsta sinn að vinna á móti nýju innritunarkerfi MMS og gekk það ferli eins og í sögu og á teymið sem að kom mikið hrós skilið.
Í sumar eru ýmis stór verkefni á borðinu sem þarf að ljúka fyrir upphaf nýs skólaárs en meðal þeirra verkefna er að ljúka við uppsetningu á nýjum námskrám í grunnskóla fyrir matsviðmiðin í InfoMentor kerfið fyrir grunnskóla og verða þær komnar inn fyrir ágúst.
Skrifstofan lokar ekki alveg í sumar þó að allir starfsmenn fari þó í langþráð og verðskuldað sumarfrí. Símaþjónustan lokar þó og verður lokuð frá og með mánudeginum 7. júlí og til og með föstudagsins 25. júlí. Hægt er að senda erindi í tölvupósti og verður þeim svarað. Þjónustunetföngin okkar eru eftirfarandi: Mentorkerfið: radgjafar@infomentor.is, INNA : inna@infomentor.is, VALA: vala@infomentor.is og Karellen: info@karellen.is
Við hlökkum til næsta skólaárs þar sem við munum m.a. geta kynnt spennandi nýjungar og væntanlega þróun.

lockmagnifiercrosschevron-down