app, starfsmannaapp

Leita

Persónuverndarlög (GDPR)

Árið 2018 tók ný reglugerð um persónuvernd gildi í aðilarríkjum ESB. Í kjölfarið var hún einnig tekin upp í EES ríkjunum sem leiddi til að ný löggjöf var sett vegna þessa á Íslandi.

Miklar breytingar hafa orðið í samfélaginu síðustu ár þar sem tæknilegar framfarir eru miklar og aukin netnotkun hefur leitt til þess að breytingar hafa orðið á því með hvaða hætti persónuupplýsingum er safnað, hvernig þær eru geymdar og notaðar og skólastarf er þar engin undantekning. Þeir sem vinna með persónuupplýsingar bera ábyrgð á því að farið sé með þær samkvæmt gildandi reglum um persónuvernd.

samþætting

Miklar breytingar hafa orðið í samfélaginu síðustu ár og hafa tæknilegar framfarir og aukin netnotkun breytt hegðun einstaklinga, stofnana og fyrirtækja mikið, skólastarf er þar engin undantekning. Breytingar hafa orðið á því með hvaða hætti persónuupplýsingum er safnað, þær geymdar og notaðar.

Mikið magn upplýsinga á rafrænu formi hefur gert almenningi auðveldara að nálgast þær t.d. með aðferðum eins og í gegnum leitarvélar eða jafnvel samfélagsmiðla. Þann 25. maí 2018 tók ný reglugerð um persónuvernd gildi í aðildarríkjum ESB. Í kjölfarið er reglugerði tekin upp í EES-samningnum og í framhaldi innleidd með nýrri löggjöf á Íslandi.

Persónuverndarlöggjöf er sett til að mæta þessum breytingum, vernda rétt einstaklingsins og sjá til þess að upplýsingarnar séu gagnsæjar, aðgengilegar og auðskiljanlegar.

Öll vinnsla persónuupplýsinga samkvæmt persónuverndarlöggjöfinni verður að eiga stoð í lögum, annaðhvort í henni sjálfri eða með annarri lagaheimild. Það er á höndum ábyrgðaraðila (skólanna) að leggja mat á hvort lögmæt heimild til vinnslu persónuupplýsinga er til staðar.

Hjá InfoMentor hefur frá upphafi verið lögð vinna og metnaður í að vinna samkvæmt persónuverndarlögum og þróa og móta persónuverndarstefnu fyrirtækisins með því að tryggja öryggi InfoMentors kerfisins með löggjöfina að leiðarljósi.

Tekið er skýrt fram í löggjöfinni að mikilvægt er að upplýsingakerfi séu útfærð með sérstakri áherslu á friðhelgi einstaklinga og hefur öll þróun á hugbúnaði InfoMentors verið með nýja persónuverndarlöggjöf í fyrirrúmi og hugbúnaðurinn fylgir að fullu nýrri löggjöf sem sett var í maí 2018.

Compass doodle

Aðlögun að GDPR

Í tengslum við innleiðingu GDPR gerðum við nauðsynlegar breytingar í InfoMentor. Allir sem eru skráðir í InfoMentor eiga rétt á að óska ​​eftir öllum gögnum um sig sem eru skráð í kerfið og höfum við því bætt við útflutningsaðgerð til að verða við þeim kröfum. Þá var einnig einfaldað fyrir notandendur að eyða upplýsingum úr kerfinu okkar.

Allir sem vilja fá upplýsingar um sig þurfa skulu hafa samband við skólann (skólastjóra) sem ber ábyrgð á persónuupplýsingum í kerfinu. Skólastjórnendur hafa þá samband við ráðgjafa InfoMentor sem opna á niðurhal upplýsinganna. Hafðu samband og við aðstoðum þig radgjafar@infomentor.is.

aðstoð hafa samband
lockmagnifiercrosschevron-down