Sérkennarinn og mentor:
Námskeiðið er ætlað sérkennurum sem vinna við einstaklingsnámskrá í sínum skóla. Hámarksfjöldi þátttakenda er tólf en námskeiðið verður aðeins haldið ef næg þátttaka næst.
Á þessu námskeiði er farið yfir alla almennar skráningar og uppsetningu á Mentor. Farið verður m.a. yfir gerð einstaklingnámskráa, hvernig á að vinna með lotur og annað sem tengist starfi sérkennara.
Tími:
Næsta námskeið verður miðvikudaginn, 18. mars kl. 14:00-16. Þátttakendur fá sendan námskeiðslink.
Þátttakendur:
Námskeiðið er sniðið fyrir sérkennara og þá sem sjá um uppsetningu á Mentor innan hvers skóla. Hámarksfjöldi þátttakenda er tólf en mögulega fellur námskeiðið niður ef ekki næst næg þátttaka.
Verð:
Verð á einstakling 15.900.-