Sérfræðinganámskeið 12. ágúst – staðnámskeið
Við bjóðum þeim sem vilja vera leiðandi í notkun á Mentorkerfinu upp á sérfræðinganámskeið. Þar er farið yfir alla möguleika kerfisins með sérstakri áherslu á stjórnendahlutann, námskrár, námslotur, verkefni, námsmat og samskipti við nemendur og aðstandendur. Mentor sérfræðingar geta leikið lykilhlutverk í árangursríkri innleiðingu á kerfinu og verið öðrum kennurum til stuðnings og leiðsagnar.
Námskeiðið er fyrir stjórnendur, verkefnastjóra og kennara í skólum. Mentor sérfræðingar fá staðfestingarskjal að loknu námskeiði og geta í framhaldi orðið tengiliðir skólans við InfoMentor. Þeir munu fá námsefni og upplýsingar til að miðla áfram til síns skóla auk þess að fá reglulega fréttir af þróun og hvernig hægt er að nýta nýja kerfið til að auka árangur í skólastarfi.
Tími:
Námskeiðið er 7 klst og er haldið á skrifstofu Mentors að Höfðabakka 9 í Reykjavík, föstudaginn 12. ágúst frá klukkan 08:30 – 16:00 (með hádegishléi)
Verð: 78.000 per einstakling