Samþætting bæði við Google og Office 365 er nú í boði fyrir þá sem nýta sér InfoMentor kerfið. Þar gefst tækifæri til að samþætta við InfoMentor dagatalið, One Drive, Google Drive, tölvupóst og single-sign-on en það felur í sér að notandi þarf eingöngu að skrá sig inn einu sinni og hefur þá aðgang bæði að InfoMentor og Google eða Office 365.
Ef skólinn ákveður að samþætta Google við InfoMentor býðst nemendum og kennurum eftirfarandi möguleikar:
Nú geta skólar sem hafa samþætt InfoMentor og Google nýtt sér Google classroom í gegnum Chrome viðbætur. Þessi nýjung nýtist þeim kennurum vel sem vilja nýta sem best þá eiginlega sem gefast í Google classroom og InfoMentor . Kennarar tengja Google classroom við námsloturnar sínar í InfoMentor og skrá síðan viðmið úr lotum við verkefnin í Google classroom. Þannig fá þeir tenginguna og geta með einföldum hætti metið árangur nemenda.
Hefur þinn skóli hefur áhuga á að samþætta InfoMentor og Google? Hafðu samband við ráðgjafa með því að senda tölvupóst í radgjafar@infomentor.is
Ef þegar er búið að búið að samþætta InfoMentor og Google í þínum skóla getur þú skoðað leiðbeiningar hér fyrir neðan.
1. Til að samþætta aðganga opnar þú bekk í Google classroom því þaðan er tengingin virkjuð. Í byrjun er rauður punktur yfir InfoMentor tákninu í hægra horninu.
2. Næsta skref er að velja hvaða Google aðgang þú vilt tengja við InfoMentor aðganginn þinn. Smelltu á InfoMentor táknið og í framhaldinu Innskráning á Google. Þegar þú hefur skráð þig inn sérðu að nú er kominn grænn punktur yfir InfoMentor táknið.
1. Þú tengir bekk í Google classroom við eina eða fleiri námslotur í InfoMentor með því að smella á táknið fyrir miðju hægra megin á skjánum.
2. Þá koma upp allar námsloturnar þínar í InfoMentor. Smelltu á Tengja aftan við þá námslotu sem þú vilt tengja við bekkinn í Google classroom.
3. Þegar þú hefur stofnað verkefni í Google classroom getur þú tengt verkefnið við viðmið úr námslotunni þinni í InfoMentor. Það gerir þú með því að smella á táknið aftan við heiti verkefnisins eins og sést á myndinni hér.
4. Hér sérðu viðmiðin sem þú getur valið úr. Veldu eitt eða fleir með því að smella á Tengja neðan við hvert og eitt.
5. Til að meta viðmiðin sem tengd eru verkefninu er smellt á Meta og þá kemur upp möguleikinn á að meta viðmiðin í lotunni þinni í InfoMentor.
6. Hér birtist námsmat í lotunni sem þú varst búin að velja fyrir verkefnið þitt í Google classroom. Þú ferð beina leið í verkefnaflipann þar sem þú getur metið viðmiðin sem þú valdir fyrir þetta verkefni.
Ef skólinn ákveður að samþætta Office 365 við InfoMentor býðst nemendum og kennurum eftirfarandi möguleikar:
Vinsamlegast hafðu samband við ráðgjafa Mentors með því að hringja í síma 520 5310 eða senda tölvupóst á radgjafar@infomentor.is til að fá frekari upplýsingar.
InfoMentor
Höfðabakki 9
110 Reykjavík
Sími: 520 5310
Netfang: info@infomentor.is
Allir nemendur eiga að fá tækifæri til að hámarka hæfni sína. Við tökum virkan þátt í skólaþróun og bjóðum upp á kerfi sem styður við faglegt starf kennara og miðar að hæfnimiðuðu námi.