Vilt þú verða Mentor sérfræðingur í þínum skóla? Næsta námskeið verður haldið 4., 12. og 18. mars 2019 kl. 13:00-16:30.
Við bjóðum þeim sem vilja vera leiðandi í notkun nýja InfoMentors upp á sérstakt sérfræðinámskeið. Þar er farið yfir alla möguleika kerfisins með sérstakri áherslu á námslotur, verkefni, námsmat og samskipti við nemendur. Mentor sérfræðingar geta leikið lykilhlutverk í árangursríkri innleiðingu á kerfinu og verið öðrum kennurum til stuðnings og leiðsagnar.
Tími
4., 12. og 18. mars 2019 kl. 13:00-16:30
Þátttakendur
Námskeiðið er fyrir stjórnendur, verkefnastjóra og kennara í skólum. Mentor sérfræðingar fá staðfestingarskjal að loknu námskeiði og verða í framhaldi tengiliðir skólans við InfoMentor. Þeir munu fá námsefni og upplýsingar til að miðla áfram til síns skóla auk þess að fá reglulega fréttir af þróun og hvernig hægt er að nýta nýja kerfið til að auka árangur í skólastarfi.
Verð
Verð á einstakling er kr. 84.500.-
Fylltu inn í eftirfarandi reiti og við munum hafa samband við fyrsta tækifæri.
InfoMentor
Höfðabakki 9
110 Reykjavík
Sími: 520 5310
Netfang: info@infomentor.is
Allir nemendur eiga að fá tækifæri til að hámarka hæfni sína. Við tökum virkan þátt í skólaþróun og bjóðum upp á kerfi sem styður við faglegt starf kennara og miðar að hæfnimiðuðu námi.