Tilnefning til Bett verðlauna 2018
Mentor hefur verið tilnefnt til BETT verðlauna í flokknum „Whole School Aids for Learning, Teaching and Assessment”. Úrslitin verða gerð kunn á sýningunni sjálfri sem haldin verður í London 24.-27. janúar. Þetta er ein stærsta sýning á sviði tækni í menntun í heiminum. Um 850 fyrirtæki kynna vörur sínar og þjónustu og áætlað er að 35.000 gestir mæti til að kynnast því nýja sem í boði er fyrir skólasamfélagið og fá um leið frekari innblástur fyrir sitt eigið starf.