Stefnumótun InfoMentors
50 starfsmenn InfoMentors frá fimm löndum komu saman á Íslandi í síðustu viku og unnu að stefnumótun og þróun kerfisins. Mikill áhugi og samhugur var meðal starfsmanna og framundan er að innleiða nýja kynslóð af InfoMentor kerfinu í fyrstu skólana á Íslandi.